Vegasafn f4x4

Uppfærsla - myndir

Umsjónarkerfi vegasíðunnar hefur verið uppfært í útgæafu 4.6.5 af Drupal og útgáfu 5 af PHP. Sem stendur er image módúllinn ekki virkur, sem veldur því að nokkur kort eru ekki aðgengileg.

Heljarskarð - Leið sem þræðir barma Heljargjár yfir Gjáfjöllin.

.S | 68 | brattar hlíðar | Fært fyrir lítið breytta jeppa | foksand | snjór fram eftir sumri

Ferillinn hefst við rætur Norðurbrekkna þar sem komið er að Gjáfjöllunum að norðan (64 22.790 N 018 25.129 W) og honum lýkur við Péturstorg á austurbrún Heljargjár sunnan Gjáfjalla (64 19.379 N 018 26.850 W 2006-09-30 18:03:01Z).

Helmingur ferilsins fer saman við leiðina S-24: Gjáfjöll - Heljarskarð -Norðurbrekkur.

Tillegg ferilsins er leiðin frá Péturstorgi norður yfir Gjáfjöllin með barmi Heljargjár.

Vestfirðri þjóðvegir

Grid Lat/Lon hddd°mm.mmm'
Datum WGS 84

Header Name Description Type Position Altitude Depth Proximity Temperature Display Mode Color Symbol Facility City State Country Date Modified Link Categories

Waypoint 016 CRTD 11:45 16-DEC-00 User Waypoint N64 18.425 W21 06.389 Symbol & Name Unknown Waypoint
Waypoint 017 CRTD 21:23 07-MAY-01 User Waypoint N64 08.874 W21 43.369 Symbol & Name Unknown Waypoint

Tjaldafell-Slunki-Þursaborg

.B | 26 | Fært fyrir breytta jeppa | vetrarleið

Þetta er hrein og klár vetrarleið - og einungis hægt að keyra í snjó.
Leiðin liggur frá línuveginum norðan við Skjaldbreið yfir að skálaþyrpingunni við Tjaldafell.
Þar er keyrt inn á milli skálanna og rétt vestan við fellið upp í brekkuna þar norðan við.
Það er keyrt upp hraun sem kölluð hafa verið Skersl nokkurn vegin beina leið upp í skála vélsleðamanna, Slunkaríki, sem stendur í skarðinu milli Þórisjökuls og dyngjunnar þar austan við sem ég veit ekki til að hafi nafn ??

Sópandaskarð - Langavatnsdalur

.C | 03 | brattar hlíðar | Fært óbreyttum jeppum

Ferillinn hefst á þjóðveginum (57) umhverfis Hvammsfjörð við vegamótin suður Hörðudal (65 01.270 N 021 45.060 W) og honum lýkur á við vegamót þar sem sveitarvegur 936 kemur á þjóðveginn (54) (64 35.420 N 021 59.110 W). Ásbjörn Harðarson hefur umritað Nobeltec-ferilinn í plt-skrá fyrir Ozi-explorer. Báðir fylgja.
Sveitarvegurinn liggur inn Hörðudal en norður af Nónsfjalli skiptast leiðir. Beint áfram austan Nónfjalls er vegur í Vífilsdal en ferillinn fylgir veginum sem fer vestan Nónfjalls suður Laugardal. Þar er engin byggð. Vegurinn er ágætur inn eftir Laugardal. Vegurinn liggur upp sneiðing í eystri hlíð dalsins upp í Sópandaskarð sem er austan við Þrúðufell og fylgir Þrúðufellinu og þaðan áfram suður og sveigir til austurs í sneiðingi meðfram gili niður í Langavatnsdal.

Miklafell - Orrustuhóll við hringveginn

.S | 67 | úfið hraun

Ferillinn hefst við skálann undir Miklafelli () og honum lýkur á hringveginum skammt vestan við Orrustuhól (63 51.247 N 017 50.060 W). Ásbjörn Harðarson hefur umritað Nobeltec-ferilinn í plt-skrá fyrir Ozi-explorer. Báðir fylgja.
Ferillinn sýnir einnig vegamótin þar sem vegur liggur norðaustur með Miklafelli að vestan til Fremrieyra og Blængs.

Skaftárdalur - Hellisárgil

.S | 66 | Fært óbreyttum jeppum | gróðurlendi

Ferillinn hefst við bæinn Skaftárdal (63 43.910 N 018 31.820 W) og lýkur við Hellisárgil (63 50.100 N 018 29.797 W) skammt fyrir ofan ármót Hellisár og Skaftár. Ásbjörn Harðarson hefur umritað Nobeltec-ferilinn í plt-skrá fyrir Ozi-explorer. Báðir fylgja.
Þetta er engjavegur næst Skaftárdal og niður undir Skaftárgil og svo uppfrá því aftur á melhæðir uns komið er að Hellisgili.

Skaftárdalur - Leiðólfsfell

.S | 65 | brattar hlíðar | getur orðið ófær í vatnavöxtum | mýrar

Ferillinn hefst við bæinn í Skaftárdal (63 47.998 N 018 29.309 W) og honum lýkur þegar komið er upp á Línuveginn austan við Hellisá austan vi Leiðólfsfell (63 50.450 N 018 27.580 W). Ásbjörn Harðarson hefur umritað Nobeltec-ferilinn í plt-skrá fyrir Ozi-explorer. Báðir fylgja.
Eini umtalsverði farartálminn á leiðinni er strax og haldið er inn á veginn ofan við húsin í Skaftárdal.

Leiðólfsfell - Hrossatungur

.S | 64 | úfið hraun | Fært óbreyttum jeppum | vöð

Ferillinn hefst austan við Leiðólfsfell við vegamót á línuveginum skammt austan við Hellisá (63 50.450 N 018 27.580 W) og honum lýkur við skálann í Hrossatungum (63 58.320 N 018 23.729 W). Ásbjörn Harðarson hefur umritað Nobeltec-ferilinn í plt-skrá fyrir Ozi-explorer. Báðir fylgja.
Þessi vegamót eru við nokkurs konar timbur-rétt og þar til suðurs liggur vegurinn í Skaftárdal. Vegurinn liggur vestur yfir Hellisá á breiðu vaði með góðum botni en öruggt er ekkert nema vaða það fyrst til að ganga úr skugga um dýpið. Vegurinn heldur vestur fyrir Leiðólfsfell og síðan til norðurs eftir vestari brautinni sem er skýr til að byrja með. Ferillinn fylgir síðan vegi sem fer af vestari veginum á þann eystri og kemur austan megin úr suðri að skálanum í Hrossatungum.

Hrossatungur - Laki

.S | 63 | úfið hraun | Fært óbreyttum jeppum

Ferillinn hefst við skálann í Hrossatungum (63 57.280 N 018 23.560 W) og honum lýkur á veginum suðaustan við Laka (64 03.530 N 018 13.539 W). Ásbjörn Harðarson hefur umritað Nobeltec-ferilinn í plt-skrá fyrir Ozi-explorer. Báðir fylgja.
Þetta er skýr vegur en næst Hrossatungum er hann grófur og seinfarinn. Hann liggur norður um Úlfarsdal og síðan norðaustur með Lakagígaröðinni allt til Laka eftir melaöldum og sandadældum.